Nýjasta útgáfa:   2018.9.15.1
Útgáfudagsetning:   15. sept. 2018
Hér getur þú sótt nýjustu útgáfu Tannlæknaþjónsins hverju sinni. 
Um er að ræða skrána Tann_update.exe (tæp 8 Mb) sem þú þarft að vista
á tölvunni þinni og ræsa síðan.  Innsetningarforritið leiðir þig áfram og að innsetningu lokinni opnast
hjálpartextinn. Þetta tekur 1-2 mínútur og síðan getur þú 
notið þess nýjasta sem Tannlæknaþjónninn hefu uppá að bjóða!
Mundu að loka Tannlæknaþjóninum á meðan þú setur uppfærsluna inn.
Ef þú notar Windows 7 eða nýrri þarf að ræsa skrána með því að hægri-smella
á hana og velja "Run as Administrator" (Keyra sem stjórnandi) 
Þessi skrá er einungis ætluð núverandi notendum, til að uppfæra Tannlæknaþjóninn í nýjustu útgáfu.
Til að fá innsetningarforrit fyrir nýja uppsetningu, skaltu hafa samband við 
Hugmót ehf.
Nánari upplýsingar um nýjungar og breytingar í þessari útgáfu, er að finna á síðunni:  
Breytingasaga Tannlæknaþjónsins.
Allar ábendingar um atriði sem betur mega fara í Tannlæknaþjóninum, og óskir um nýjungar, 
eru mjög vel þegnar.  Fylltu út ábendinga-formið á vefnum.
 
