<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Aðrar aðgerðir > Senda SMS-skeyti til valinna aðila |
Þessi aðgerð hentar vel til minna sjúklinga á ógreidda reikninga, fyrir innköllun o.m.fl. Aðeins er hægt að nota þessa sendingaraðferð ef þú ert í viðskiptum við SMS-sendiþjónustu, þ.e. þú borgar fyrir þessi skeyti.
Veldu Ýmislegt - Senda SMS-skeyti til valinna aðila til að kalla fram þessa skjámynd:
Tilgreindu viðeigandi forsendur og ýttu svo á takkann Velja, til að velja móttakendur. Þá birtast þeir sjúklingar sem uppfylla forsendurnar. Því fleiri atriði sem þú tilgreinir, þeim mun þrengra er valið og færri munu veljast á listann.
Þú getur tvísmellt á sjúkling til að sækja upplýsingar um hann, eða fellt niður tiltekinn sjúkling með því að hægri-smella og velja Fella af lista.
Því næst velur þú rammaskeyti til að nota fyrir sendinguna. Hægt er að gera breytingar á skeytinu (sem vistast ekki) og forskoða hvernig það mun líta út fyrir tiltekinn sjúkling. Þú getur vísað á breytuheiti, til að kalla fram tiltekin atriði.
Að lokum ýtir þú á takkann Senda skeyti á valda aðila, og mun þá kerfið senda persónulegt SMS-skeyti á alla þá sem eru á listanum.
Ef hætt var við sendingu í miðjum klíðum, er hægt að halda áfram þar sem frá var horfið með því að smella aftur á senda takkann. Hver lína er merkt með haki í dálkinn Sent ef sending gekk eðlilega. Að sendingu lokinni, er hægt að skoða sendiskýrsluna til frekari staðfestingar.