<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Aðrar aðgerðir > Afrita helstu atriði um sjúkling |
Þessi aðgerð afritar helstu upplýsingar um sjúkling yfir á Windows klippuborðið. Það má nýta til samskipta við önnur forrit, s.s. fyrir límmiðaprentun, bréfaskriftir og fleira í þeim dúr.
Þessi liður er aðgengilegur í valmyndinni, undir liðnum Sjúklingur - Afrita helstu upplýsingar á klippuborðið. Einnig má nota Alt+C af lykilborðinu til að framkvæma þetta hvar sem er í forritinu. Sjálfgefið birtast þessar upplýsingar:
Númer: 0112
Kennitala: 150757-2239
Nafn: Ingólfur Helgi Tryggvason
Símar: 893-8227 557-4927 560-1525
Hægt er að skilgreina hvaða svæði eru notuð, og á hvaða formi, með því að breyta skráningu í Tann.ini stýriskránni og má þar vísa í ýmis breytuheiti. Þetta dæmi um uppsetningu:
[Sjúklingur]
Afrita=Sjúklingur: #ID - #NATIDD (#AGE)#NL#NL#NAME#NL#HOME#NL#POST#NL#NLNæsti tími: #NDATE kl. #NTIME
skilar þessu á klippuborðið:
Sjúklingur: 0112 - 150757-2239 (57)
Ingólfur Helgi Tryggvason
Jakaseli 16
109 Reykjavík
Næsti tími: 12. feb. 2012 kl. 09:00