<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Aðstoð í boði > Viðhald tölvukerfis |
Hugmót býður alhliða aðstoð við rekstur tölvukerfa og tengingu milli ólíkra kerfa.
Einnig tökum við að okkur að "dekstra" við tölvurnar þínar, svo þær skili alltaf hámarksafköstum. Meðal þess sem við tökum að okkur, eru eftirtaldir verkþættir:
•Uppfærsla stýrikerfis
•Uppfærsla forrita
•Uppfærsla tækjarekla
•Hreinsun á Windows Registry
•Afstykkjun disks
•Vírus- og óværuleit
•Mælingar á afköstum
•Lagfæringar á netvandamálum
•Uppsetningu eða endurnýjun á net- og raflögnum í samvinnu við rafverktaka
•Uppsetning á tengingum við önnur kerfi, t.d. röntgen-myndavélar
•Uppsetning og lagfæringar á röntgen-myndavélum og skönnum
•Uppsetning á varaaflgjöfum (UPS)
•Uppsetning á fjarstýri-forritum svo tannlæknar geti unnið heiman frá
•Skilgreina sjálfvirka leiðréttingu á tímastillingu tölvubúnaðar
•Skilgreina samspil milli forrita
•Rykhreinsun
•Stækka innra minnið í tölvunum
•Ráðgjöf um kaup á hugbúnaði til að halda tölvunum í topp-formi
•Eftirlit með þjónustum og uppitíma
• ... og margt fleira.
Að sjálfsögðu bjóðum við líka óháða ráðgjöf varðandi uppfærslu tölvubúnaðar og aðstoð við uppsetningu hans.
Hafðu samband við Ingólf Helga í síma 893-8227 eða sendu skeyti á it@hugmot.is ef þú þarft aðstoð við rekstur eða endurnýjun tölvukerfisins.