Tannlæknaþjónninn er forrit sem auðveldar tannlæknum og aðstoðarfólki að halda utan um sjúklinga og sögu þeirra.Forritið innifelur dagbók fyrir tímapantanir, skráningu á helstu atriðum um sjúklinginn og utanumhald um þær aðgerðir sem framkvæmdar hafa verið á honum.
Tannlæknaþjónninn býður einnig upp á ýmiss konar útskriftir, SMS-sendingar, tengingu við röntgen-forrit o.m.fl. Þar með uppfyllir það allar helstu þarfir tannlæknis til að halda utan um daglegan rekstur stofunnar.
Tenging við Sjúkratryggingar Íslands og uppfletting í þjóðskrá á netinu í samstarfi við Ferli ehf, er meðal atriða sem auðvelda og flýta fyrir vinnslum í kerfinu.
Tannlæknaþjónninn er samstarfsverkefni Hugmóts og Tannlæknastofu EG ehf. Hugmót sér um þróun kerfisins ásamt þjónustu við notendur, en TEG veitir sérfræðiálit vegna nýjunga og breytinga á kerfinu.
Hafðu samband við okkur ef þú vilt fá aðstoð við að setja nýju útgáfuna upp hjá þér. Hringdu í Ingólf Helga í síma 893-8227 eða sendu póst á it@hugmot.is og við finnum tíma handa þér.
Smelltu á tenglana til að fræðast nánar um einstaka þætti kerfisins.
© 2011-2021, Hugmót ehf og TEG ehf - Allur réttur áskilinn